Þungu fargi létt af Ronaldo - „Ég er mættur aftur!“

Ronaldo er svo sannarlega mættur aftur

Mynd: EPA

Ronaldo er svo sannarlega mættur aftur

Mynd: EPA
Léttirinn sást vel á Cristiano Ronaldo eftir að hafa skorað tvennu í 5-0 stórsigri Portúgals á Úsbekistan á heimsmeistaramótinu í kvöld.

TENGT EFNI
Sá elsti til að skora tvennu á HM
Ronaldo átti ekki gott heimsmeistaramót í Katar síðast og hafði verið gagnrýndur fyrir þetta mót.
Frammistaða hans í 1-1 jafnteflinu gegn Kongó í fyrstu umferðinni hjálpaði ekki til og sjálfselska hans var til umræðu. Talað var um að hann væri aðeins að hugsa um eigin hagsmuni í stað liðsins en allt annað var að sjá til hans í kvöld.
Ronaldo lagði sig fram fyrir liðið og uppskar sjálfur tvö mörk, auk þess að fá fjölmörg færi til að bæta við fleiri mörkum.
„Ég er mættur aftur, ég er mættur aftur!“ sagði Ronaldo í myndavélina fyrir framan stuðningsmennina.
Þetta hefur eflaust gefið honum mikið fyrir framhaldið en Portúgal mætir Kólumbíu í lokaleiknum í riðlinum.

???? Cristiano Ronaldo: "I'm back... I'm back" ????????
— Preeti (@MadridPreeti) June 23, 2026
pic.twitter.com/y2DDOBDmJC