Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
banner
   mið 03. júní 2026 23:34
Ívan Guðjón Baldursson
Bestur á Spáni annað árið í röð
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Hansi Flick hefur verið kjörinn þjálfari ársins á Spáni annað árið í röð eftir að hafa leitt Barcelona til annars Spánarsmeistaratitilsins á tveimur árum.

Flick tók við Barca fyrir tveimur árum og hefur unnið deildina og ofurbikarinn bæði árin auk þess að hampa Konungsbikarnum í fyrra.

Joan García, markvörður Barcelona, fékk fæst mörk á sig að meðaltali á leik á tímabilinu á meðan Kylian Mbappé, stjörnuleikmaður Real Madrid, endaði markahæstur og liðsfélagi hans Arda Güler skoraði mark tímabilsins.

La Liga á eftir að veita verðlaun fyrir besta leikmann tímabilsins og þann efnilegasta, en talið er líklegt að tveir félagar úr meistaraliði Barcelona hreppi þau verðlaun. Hinn ungi Lamine Yamal verður valinn besti leikmaður tímabilsins framyfir Mbappé á meðan Fermín López er líklegur til að vera valinn besti ungi leikmaður tímabilsins.

Þá er líklegt að Joan García hljóti einnig verðlaun fyrir markvörslu tímabilsins, en hann er að keppa við Jan Oblak og Unai Simón þar.

   23.05.2026 20:20
Flick hrósaði Pep: Ég verð farinn fyrir sjötugsafmælið



Slapp
banner
banner