Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
   mið 03. júní 2026 22:40
Ívan Guðjón Baldursson
Nýr þjálfari Ajax vill miðjumann frá Real Madrid
Ceballos hefur spilað 215 leiki fyrir Real Madrid og unnið til ótal verðlauna með stórveldinu.
Ceballos hefur spilað 215 leiki fyrir Real Madrid og unnið til ótal verðlauna með stórveldinu.
Mynd: EPA
Hollenska stórveldið Ajax er nýbúið að ráða inn spænska þjálfarann Míchel sem vill ólmur styrkja leikmannahópinn eftir mikið vonbrigðatímabil hjá félaginu.

Hann ætlar að gera allt í sínu valdi til að krækja í samlanda sinn Dani Ceballos úr röðum Real Madrid, en Ceballos er aðeins með eitt ár eftir af samningi og er ekki talinn vera partur af framtíðaráformum Madrídinga.

Ceballos er 29 ára gamall og hefur einnig leikið með Real Betis og Arsenal á ferlinum, auk þess að eiga 13 A-landsleiki að baki fyrir Spán. Hann var lykilmaður í U19 og U21 liðunum auk þess að hreppa silfurverðlaun á Ólympíuleikunum 2020 (sem voru haldnir 2021 vegna COVID) með U23 liðinu.

Ajax rétt tókst að tryggja sér sæti í Sambandsdeildinni fyrir næstu leiktíð með sigri eftir vítaspyrnukeppni í lokaleik nýliðins deildartímabils. Það þykir deginum ljósara að breytinga er þörf þar á bæ.

   20.04.2026 06:00
Sjö leikmenn gætu yfirgefið Real Madrid

Slapp
banner
banner
banner