Fotbolti.net
03.07.13 - 23:13
Magnús Þór Jónsson

Ási: Hvort hann er of stór fyrir klúbbinn

Auglýsing
Ási: Hvort hann er of stór fyrir klúbbinn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ásmundur Arnarson þjálfari Fylkis var á því að úrslit kvöldsins þýddu frekar tvö töpuð stig en eitt unnið.



\"Við förum héðan hálf svekktir.  Auðvitað er hvert stig dýrmætt í þeirri baráttu sem við erum í en mér fannst við heldur ofaná og eiga fleiri möguleika.  Einar nær þarna tvisvar eða þrisvar að verja mjög vel\".
Ásmundur vildi þó horfa á það sem jákvætt var í kvöld.



\"Við héldum hreinu í fyrsta skipti í sumar og það er nú oft eitthvað til að byggja á.\"



Töluverðar róteringar hafa verið á byrjunarliði Fylkis í sumar vegna meiðsla, að þessu sinni duttu tveir  leikmenn, Kjartan og Elís, út úr hóp af þeim sökum.



\"Þetta spilar auðvitað inní.  Við vorum að fá menn seint inn í vor og í misgóðu standi og við vissum að við þyrftum að koma mönnum í gang inn i mótið.  Svo missum við menn óvænt út eins og Kristján Hauks í beinmar og Pablo í brot þannig að það er ýmislegt að glíma við, svona er bara þessi bransi\".



Ásmundur var inntur eftir því hvort stöðug umræða um stöðu Tryggva Guðmundssonar hjá félaginu og í liðinu væri að ergja þjálfarann og leikmannahópinn:



\"Það er hárrétt hjá þér að það er mikill fókus á einn leikmann, hvort hann er of stór fyrir félagið, ég veit það bara ekki.  En menn fókusera ansi mikið á það.  Hann er og er búinn að vera í lykilhlutverki hjá okkur.\" og síðar í viðtalinu, \"Tryggvi er flottur leikmaður og vonandi getum við fókuserað á leik liðsins\".



Nánar er rætt við Ása í viðtalinu sem fylgir fréttinni, m.a. um skort á sjálfstrausti, leikmannagluggann og bikarleikinn sem nú er yfirvofandi gegn Stjörnunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.