Arek: Vissum að þetta yrði baráttuleikur
Auglýsing

Fyrirliði Leiknismanna skoraði tvívegis í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

<i>„Þetta var bara glæsilegt, við vorum ákveðnir að ná í þrjú stig hérna og það er bara frábært,''</i> sagði Arkadiusz Jan Grzelak, fyrirliði Leiknis F. eftir 0-2 sigur á Magna í Lengjudeild karla í kvöld.
Arek, eins og hann er kallaður, skoraði mörk Leiknis í leiknum og var öflugur í vörn liðsins.
„Tvö mörk! Ég hef verið svolítið að skora og er alveg hættulegur í teignum, það þarf bara að senda mig oftar fram!''
Hann hélt áfram:
„Þetta var bara baráttusigur, við vissum að þetta yrði baráttuleikur og við fórum með baráttuna inní leikinn og uppskárum þrjú stg, bara frábært.''
„Næsti leikur er á móti Þrótti og við ætlum okkur þrjú stig þar líka,'' sagði Arek að lokum.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.