Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 03. júlí 2020 07:00
Auglýsingar
Rinat er nýtt markmannsmerki á Íslandi
Mynd: Rinat
Aron Dagur Birnuson markvörður KA spilar í Rinat hönskum.
Aron Dagur Birnuson markvörður KA spilar í Rinat hönskum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markmannshanskar og vörur frá vörumerkinu Rinat eru nú loks fáanlegar á Íslandi. Í dag opnar glæsileg netverslun www.rinat.is með frábærum opnunartilboðum.

Margir markmenn spila nú þegar með Rinat hér á landi, til að mynda markmenn í Pepsí Max og Lengjudeildum karla og kvenna. Vefsíðan er sú eina hér á landi sem býður aðeins upp á markmannsvörur. Margar nýungar verða í boði hjá Rinat á Íslandi sem hafa ekki sést hér á landi áður. Í samvinnu við fyrirtækið hafa 5 íslenskir markmenn skrifað undir samning við Rinat.

„Ástæðan fyrir því að ég fór að flytja inn markmannshanska var upphaflega vegna þess að sonur minn er markmaður og við tókum eftir hversu ábótavant úrvalið og aðgengið að hönskum var hérlendis. Ég vildi finna merki sem væri framarlega á sínu sviði án þess að horfa til stóru vörumerkjanna. Það tók ekki langan tíma að finna og sannfærast um Rinat sem nota aðeins bestu fáanlegu efni í sína hanska. Að auki má geta þess að Rinat hefur upp á að bjóða mjög mikið úrval af mismunandi gerðum af hönskum og litaúrvalið er einnig afar glæsilegt," segir Einar Bjarni, umboðsmaður Rinat á Íslandi.

„Markmiðið er fyrst og fremst að bjóða markmönnum á Íslandi upp á gæða hanska á góðum kjörum. Ég vil aðstoða félögin í landinu til að hugsa betur um sína markmenn og bjóða þeim upp á sérkjör fyrir alla sína markmenn. Nokkur félög eru þegar komin í samstarf og ég tek fagnandi á móti félögum í Rinat fjölskylduna. Einnig er hægt að fá vörurnar í heildsölu fyrir verslanir."

Saga Rinat er mjög áhugaverð og þess virði að kynna sér hana. Fyrirtækið var stofnað árið 1986 af Mexíkóanum og markmanninum Hector Castro og hafa markmannshanskarnir verið framleiddir alla tíð síðan í sömu byggingunni í Mexíkó. Rinat eru nefndir í höfuðið á markmannsgoðsögninni Rinat Dasayev sem stóð á milli stanganna hjá landsliði Sovétríkjanna á níunda áratug síðustu aldar. Merkið er að ryðja sér til rúms í Evrópu og hefur verið sérstaklega vinsælt í Suður-Ameríku og margir af bestu markmönnum í Mið- og Suður-Ameríku nota þá. Rinat eru notaðir af landsliðsmarkmönnum og meðal annars í La Liga efstu deild á Spáni og öðrum efstu deildum víðsvegar um Evrópu.

Frekari upplýsingar veitir:
Einar Bjarni Jónsson umboðsmaður Rinat á Íslandi www.rinat.is
Sími: 8241418 [email protected]
Athugasemdir
banner
banner