Oddur Ingi Bjarnason, leikmaður KV í Lengjudeildinni, verður ekkert með liðinu næstu vikurnar eftir að hafa greinst með bólgur í kringum hjartað en félagið greinir frá þessu á samfélagsmiðlum í kvöld.
Oddur er fæddur árið 2000 en hann kom til KV á láni frá KR fyrir tímabilið.
Hann hefur spilað 7 leiki í Lengjudeildinni á þessari leiktíð en verður ekki með liðinu næstu vikurnar.
Það er greint frá því á Twitter hjá KV í kvöld að Oddur greindist með bólgur við hjartað og mun því ekki spila með liðinu í næstu leikjum.
KV er í 11. sæti deildarinnar með 7 stig eftir fyrstu níu leikina.
Oddur Ingi verður frá næstu vikurnar eftir að hafa greinst með bólgur í kringum hjartað. Við sendum okkar manni batakveðjur og vonumst til að fá hann aftur inn á völlinn sem fyrst. pic.twitter.com/PhNcf74HTO
— KV Fótbolti (@KVfotbolti) July 3, 2022
Athugasemdir