Fotbolti.net
03.07.26 - 12:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Ég veit ekki einu sinni hvar ég á að byrja"

Halldór Árnason og Arnór Sveinn Aðalsteinsson.

Halldór Árnason og Arnór Sveinn Aðalsteinsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Í stuttu máli var frábært að vinna með honum," segir Arnór Sveinn Aðalsteinsson spurður að því hvernig var að vinna með Halldóri Árnasyni hjá Breiðabliki.

Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 1. júlí á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.
Arnór Sveinn spilaði bæði fyrir Halldór hjá Breiðabliki og var síðar aðstoðarþjálfari hans hjá Kópavogsfélaginu.

„Hann er rosalega heill í sínum störfum og algjör prinsippmaður," segir Arnór Sveinn.

„Hann beygir sig ekki undir neitt nema að það falli undir hans prinsippramma. Það gerir hann rosalega stöðugan og hann veit alltaf hvaða ákvörðun á að taka því hann hefur myndað sér svo sterk gildi. Það er svo þægilegt að vinna með svoleiðis manni. Það er alltaf þessi heiðarleiki í fyrirrúmi og það er rosalega þægilegt að vinna með svoleiðis einstaklingi. Sem leikmaður fékkstu stöðug skilaboð og það var mikil áhersla á frammistöðu. Sem þjálfari veistu hvaða leið þú átt að fara því prinsippin eru svo sterk."

Arnór lærði mikið af honum þann tíma sem þeir unnu saman.

„Ég veit ekki einu sinni hvar ég á að byrja," segir Arnór.

„Fótboltalega séð lærirðu mikið með reynslu en það sem þú lærir af honum á fyrsta degi er: Stattu fyrir það sem þú stendur, veistu hvað þú ert og hvað þú vilt vera, þá verða allar ákvarðanir auðveldar í kjölfarið."

„Það eru margir sem hafa skoðun í svona meistaraflokksumhverfi og margir eru að segja þér að gera eitt og annað. Þú þarft að taka erfiðar ákvarðarnir en þegar þú ert viss um hver þú ert og hvað þú vilt vera, þá verða allar ákvarðanir auðveldar í kjölfarið. Það lærði ég allra mest af honum þegar ég vann með honum," segir heimspekingurinn Arnór Sveinn en Halldór er nýr þjálfari Vals og tekur við hjá Hlíðarendafélaginu eftir tímabil.

„Bravó Valur!" - Ástæður þess að Dóri Árna er ráðinn
TENGT EFNI

„Bravó Valur!" - Ástæður þess að Dóri Árna er ráðinn

Halldór er nýr þjálfari Vals.

Halldór er nýr þjálfari Vals.

Canon

Mynd: EPA

Arnór var bæði aðstoðarþjálfari og leikmaður hjá Halldóri.

Arnór var bæði aðstoðarþjálfari og leikmaður hjá Halldóri.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.