Markalaust í toppslag hjá Alex og Sigga Ragga - Atli lagði upp

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alex Freyr Elísson var í byrjunarliði NSÍ Runavik sem fékk KÍ Klaksvik í heimsókn í toppslag í færeysku deildinni í kvöld.
KÍ var sterkari aðilinn í leiknum en markalaust jafntefli var niðurstaðan. Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari NSÍ, tók Alex Frey af velli eftir 70 mínútna leik. Það var hasar undir lokin en bæði lið misstu mann af velli með rautt spjald.

NSÍ er á toppnum með 34 stig eftir 16 umferðir. Liðið er með þriggja stiga forystu á KÍ sem er í 2. sæti.
Atli Barkarson lagði upp mark Sogndal sem tapaði 5-1 á móti toppliði Kongsvinger í næst efstu deild í Noregi. Sogndal er í 12. sæti með 15 stig eftir fimmtán umferðir.
Nóel Atli Arnórsson var í byrjunarliði Álaborg sem vann 3-1 sigur á Viborg í æfingaleik.