Missti allan styrk og hreyfigetu í hendinni eftir sjaldgæf taugameiðsli

Verið hjá Skaganum í rúm tvö ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Segir liðið eiga nóg inni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Hópurinn lét mér líða eins og heima hjá mér frá fyrsta degi.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Líður vel uppi á Skaga.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ísland er fallegt land og Akranes er frábær staður til að búa á.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Finnur lítið sem ekkert fyrir meiðslunum í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mario hjálpaði mér mikið í gegnum allan batann og félagið studdi virkilega vel við bakið á mér allan tímann.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Verið hjá Skaganum í rúm tvö ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alls var Erik frá í um átta mánuði en hann hefur spilað átta leiki fyrir ÍA í deildinni í sumar.
Skagamenn fá Breiðablik í heimsókn í Bestu deildinni á morgun. Leikurinn fer fram á meðan bæjarhátíðin Írskir dagar standa sem hæst á Akranesi og má búast við mikilli stemningu. Fótbolti.net ræddi við Sandberg í aðdraganda leiksins.
„Leikurinn á morgun á móti Blikum verður erfiður leikur á móti mjög góðu liði, en ég held að við eigum góða möguleika. Við ætlum okkur klárlega sigur.
Við vonumst eftir frábærri stemningu þar sem Írskir dagar standa yfir á Akranesi og munum við gera allt sem við getum til að sýna góða frammistöðu fyrir alla sem koma og styðja okkur. Ég hef fengið þann heiður að spila leikinn sem fer fram á írskum dögum síðustu tvö ár og það er alltaf svalasti (e. coolest) leikur ársins,“ segir Norðmaðurinn.
Eiga fleiri stig inni
Aðspurður um byrjunina á tímabilinu segir hann liðið eiga meira inni. „Mér finnst við hafa byrjað tímabilið ágætlega. Við höfum átt nokkrar virkilega góðar frammistöður en líka nokkrar sem voru undir okkar eigin væntingum. Við höfum líka spilað nokkra leiki þar sem okkur fannst við vera með yfirhöndina og eigum líklega skilið að vera með fleiri stig en við erum með.
Þannig að það hefur verið smá óstöðugleiki, en það er eðlilegt með tiltölulega nýjan leikmannahóp ásamt nokkrum meiðslum. Okkur finnst öllum að við séum að þróast í rétta átt og ég er fullviss um að við munum safna mörgum stigum og eiga margar sterkar frammistöður það sem eftir er af tímabilinu,“ segir Erik.
Líður vel uppi á Skaga
Erik er samningsbundinn ÍA út tímabilið. Hann hefur verið hjá félaginu í rúm tvö ár og líkar lífið uppi á Skaga. Hann segist þó ekki hafa spáð mikið í samningstöðu sinni eftir að hafa verið mikið frá vegna meiðsla.
„Þar sem ég hef verið frá í töluverðan tíma vegna meiðsla hef ég satt best að segja ekki hugsað mikið um samningsstöðu mína. Eina áherslan hefur verið á að komast aftur inn á völlinn og það er enn aðaláherslan er, að spila góðan fótbolta og hjálpa ÍA að komast ofar í töflunni.“
„Ég hef notið tímans á Akranesi virkilega vel. Ísland er fallegt land og Akranes er frábær staður til að búa á, mikið af vinalegu og góðu fólki. Hópurinn lét mér líða eins og heima hjá mér frá fyrsta degi, svo ég hef notið þess að bæði búa og spila hérna,“ segir Erik jafnframt.
Missti allan styrk
Eins og áður sagði var Sandberg frá í um átta mánuði vegna taugavanda í annarri hendinni.
„Ég meiddist gegn Víkingi í ágúst á síðasta ári. Ég fékk högg á hálsinn eftir skallaeinvígi og það varð til þess að öxlin og handleggurinn á mér nánast gáfu sig. Ég missti allan styrk og hreyfigetu í þeim og þar sem þetta var taugaskaði tók langan tíma að endurheimta styrkinn og hreyfigetuna. Þetta eru mjög sjaldgæf meiðsli, svo ég var hreinlega bara óheppinn.“
Hvernig var að ná sér eftir svona meiðsli?
„Endurhæfingin gekk vel, þótt hún hafi verið löng. Sjúkraþjálfarinn okkar, Mario, hjálpaði mér mikið í gegnum allan batann og félagið studdi virkilega vel við bakið á mér allan tímann. Nú er ég byrjaður að spila aftur og finn sem betur fer lítið fyrir þessu lengur,“ segir Erik að lokum.

Sandberg að snúa aftur eftir átta mánaða fjarveru

Segir liðið eiga nóg inni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Hópurinn lét mér líða eins og heima hjá mér frá fyrsta degi.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Líður vel uppi á Skaga.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ísland er fallegt land og Akranes er frábær staður til að búa á.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Finnur lítið sem ekkert fyrir meiðslunum í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mario hjálpaði mér mikið í gegnum allan batann og félagið studdi virkilega vel við bakið á mér allan tímann.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð





