03.08.16 - 22:17
Ingunn Hallgrímsdóttir
Heimir: Búumst við miklu af Kaj Leo
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
„Mér fannst við spila vel í þessum leik,\" sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, eftir 3-1 sigur á ÍA í kvöld.
„Við létum boltann ganga mjög vel á milli vængja, bæði með stuttum og löngum sendingum. Fyrirgjafirnar voru töluvert betri i þessum leik heldur en hefur verið í sumar.\"
FH hefur ekki tapað á Akranesi síðan árið 2005 en kann Heimir skýringu á þessu góða gengi þar? „Ég hef ekki hugmynd. Ég vissi ekki af þessari tölfræði enda er ég ekki mikill tölfræðimaður.\"
Kaj Leo í Bartalsstovu spilaði sinn fyrsta leik með FH í kvöld en þessi færeyski landsliðsmaður kom til liðsins í síðustu viku.
„Hann er mjög öflugur leikmaður. Við vildum styrkja sóknarleikinn fyrir seinni hlutann og hann hefur komið vel inn á æfingum. Við búumst við miklu af honum.\"
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.