Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 03. ágúst 2022 10:08
Elvar Geir Magnússon
West Ham búið að semja um Onana
Mynd: EPA
West Ham hefur gert samkomulag við Lille um kaup á miðjumanninum Amadou Onana fyrir 33,5 milljónir punda.

David Moyes og hans menn hafa verið að vinna í því að styrkja leikmannahóp sinn.

Onana er tvítugur og kom til Lille frá Hamburger SV á síðasta ári.

Kaupin á Onana eru þó ekki frágengin og það á enn eftir að semja við leikmanninn sjálfan.

West Ham er einnig að vinna í því að reyna að fá Maxwel Cornet frá Burnley. Cornet er líklega á leið frá Burnley sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner