Badu: Ef við spilum eins og við gerðum í þá vinnum við ekkert lið í deildinni

Daniel Badu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daniel Badu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vestri tók á móti Gróttu í 16. umferð Lengjudeildarinnar fyrr í dag. Leikurinn endaði 3-0 fyrir Gróttu. Daniel Badu og hans menn sáu ekki til sólar í leiknum í dag og Fótbolti.net ræddi við Badu eftir leik.
„Ég held að 3-0 tap sé nokkuð ósanngjarnt en ef við gerum hlutina sem við gerðum varnarlega í dag þá getum við ekki unnið leiki". Sagði Daniel Badu eftir tapið.
Vestri voru meira með boltann í dag og reyndu að finna opnannir á vörn Gróttu. Það gekk illa að finna leiðir, hvers vegna var það?
„Þeir lögðust til baka og leyfðu okkur að hafa boltann. Þegar við vorum að sækja og leita af réttu sendingunni í teignum þá voru þeir alltaf fyrstir á boltann. Það var ekki næg orka í liðinu, Grótta var með meiri orku. En stundum er þetta þannig í fótbolta að hlutirnir detta ekki þín megin og þú þarf að gera meira en hitt liðið.
Með sigri í dag hefði Vestri verið aðeins tveimur stigum fráumspilssætum en þeir eru nú fimm stigum frá. Vestri hafa verið að horfa upp í þessi sæti. Þeir eru aðeins frá því núna, finnst þér líklegt að þið náið umspilssæti?
„Ef við spilum eins og við spiluðum í dag getum við ekki unnið neitt lið í þessari deild. Svo við getum ekki verið að hugsa um umspilið, heldur þurfum við að hugsa um og gera einfalda hluti sem við gerðum ekki í dag.
Vestri fer til Njarðvíkur í næstu umferð að leika gegn gamla þjálfaranum honum Davíð Smára Lamude, hvernig leggst sá leikur í þig?
„Njarðvík er eins og öll önnur lið, ef þú nærð ekki mæta þeirra baráttu og hlaupum og ef þú ert ekki nógu sterkur inn í teig þá gæti það verið ljótur dagur".
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum fyrir ofan.
