Fotbolti.net
03.08.26 - 21:11
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Besta deildin: Ótrúlegur viðsnúningur á Hlíðarenda

Besta deildin: Ótrúlegur viðsnúningur á Hlíðarenda
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Valur 2 - 3 Stjarnan
0-1 Benedikt V. Warén ('15 )
1-1 Jónatan Ingi Jónsson ('24 )
2-1 Myles A Veldman ('80 )
2-2 Árni Vilhjálmsson ('87 )
2-3 Örvar Eggertsson ('93 )
Lestu um leikinn
Valur fékk Stjörnuna í heimsókn í Bestu deildinni í dag. Stjörnumenn voru nálægt því að komast yfir snemma leiks en Emil Atlason vippaði boltanum framhjá markinu.

Stjörnumenn byrjuðu leikinn mun betur og náðu verðskuldaðri forystu eftir stundafjórðung. Hólmar Örn Eyjólfsson náði boltanum af Guðmundi Baldvin Nökkvasyni en boltinn barst til Benedikts Warén sem skoraði með skoti úr vítateignum.

Valsmenn jöfnuðu metin stuttu síðar þegar Jónatan Ingi Jónsson skoraði með snyrtilegri vippu yfir Árna Snæ Ólafsson í marki Stjörnunnar. Þetta var fyrsta mark hans í sumar.

Benedikt var nálægt því að koma Stjörnunni aftur yfir eftir klukkutíma leik en átti skot í stöngina.

Myles Veldman kom inn á sem varamaður þegar stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma. Stuttu síðar átti hann skot vel fyrir utan teginn og boltinn fór í stöngina og inn.

Stjörnumenn gáfust ekki upp og þeim tókst að jafna metin undir lokin þegar Markus Nakkim varð fyrir því óláni að skalla boltann í eigið net.

Það var svakaleg dramatík í lokin. Benedikt Warén kom með fastann bolta inn á teiginn og Örvar Eggertsson kom boltanum í netið og tryggði Stjörnunni dramatískan sigur.

Stjarnan er í 8. sæti með 18 stig en Valur er í 5. sæti með 19 stig.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.17+4244
2Fram17+1437
3KR16+2235
4Breiðablik16+929
5Valur16-619
6ÍA17-819
7Keflavík16-819
8ÍBV17-916
9KA16-815
10Stjarnan16-1215
11FH16-1113
12Þór16-2512
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.