Danni Finns óskaði eftir því að fara frá Stjörnunni


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Góður sigur og frábær frammistaða hjá Stjörnuliðinu í dag" sagði Jón Þór Hauksson, þjálfari Stjörnunnar eftir dramatískan 2-3 sigur gegn Val á Hlíðarenda.
Átti Stjarnan skilið að sigra?
„Heldur betur, mér fannst við vera betra liðið á vellinum megnið af leiknum. Byrjum leikinn frábærlega, fyrsta hálftímann fannst mér eitt liðið vera á vellinum. Byrjum seinni hálfleikinn af sama krafti og sköpum okkur urmul af marktækifærum og ótrúlegt í rauninni að þetta hafi verið leikur en Valsararnir gera vel og komast yfir. Karakterinn sem Stjörnuliðið sýndi á því mómenti er bara stórkostlegur, að lenda undir þegar er svona lítið eftir og koma til baka og vinna leikinn það er meira en að segja og frábærlega gert hjá strákunum."
Daníel Finns Matthíasson, leikmaður Stjörnunnar var ekki í hópi í dag.
„Hann er ósáttur og óskaði eftir því að fara, á meðan svo er þá þurfum við leikmenn sem eru tilbúnir til þess að einbeita sér að því verkefni í þessu mótlæti sem Stjarnan hefur verið í sumar. Við þurfum leikmenn sem eru tilbúnir að sigrast á því. Þannig að Danni var ekki með okkur í kvöld. Danna er sárt saknað, hann er frábær leikmaður, vonandi finnum við góða lausn á því."
Er eitthvað lið búið að leggja fram tilboð?
„Ég bara veit það ekki."
Gummi Kri fór út af velli meiddur.
„Hann fékk aftan í læri."
Ari Leifsson kom inn á í staðinn fyrir Gumma, Ari hefur ekki fengið mikið af mínútum síðan hann kom í Stjörnuna.
„Ari er nýkomin til félagsins, hefur ekki spilað leik síðan í maí. Þannig að við erum að koma honum inn í það. Mér fannst Ari standa sig frábærlega hér í kvöld og kom mjög sterkur inn og hefur komið mjög sterkur inn í okkar hóp og vonandi heldur hann þeirri þróun áfram."


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
