Hefur enn ekki unnið leik í Bestu deildinni - „Ég get gert betur"


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Auðvitað er ég mjög svekktur" sagði Chris Brazell, þjálfari Vals eftir 2-3 tap gegn Stjörnunni á Hlíðarenda.
„Ég er meðvitaður um vegferðina sem við erum á og ég held að við vorum nálægt því að klára frábæra 10 daga af fótbolta. Tvær mjög góðar frammistöður í Evrópu og góðar 85 mínútur í dag. Mjög sterk frammistaða í dag þrátt fyrir tap, fótbolti er níutíu til níutíu og fimm mínútur, ekki áttatíu og fimm mínútur, við tókum fótinn af bensíngjöfinni á síðustu mínútunum. Hrós á Stjörnuna, þeir refsuðu okkur."
Eftir sigur gegn Mostar, var frammistaðan verri?
„Ég myndi ekki segja að frammistaðan væri verri, ég held að hún var verri síðustu fimm eða sex mínúturnar í enda leiks. Ég bjóst við skrýtnum leik, þar sem við vorum búnir að ferðast langt og spiluðum í erfiðu loftslagi á móti erfiðum andstæðingum. Stjarnan spilaði hundrað og tuttugu mínútur og þurftu að ferðast líka. Þannig að ég vissi að leikurinn myndi vera erfiður."
Chris Brazell hefur enn ekki unnið leik með Val í bestu deildinni.
„Ég myndi ekki segja að þetta sé óheppilegt, þetta er ekki nógu gott. Ég held í þessum fjórum leikjum hefur frammistaðan verið góð, eins og það hefur sýnt sig í Evrópuleikjunum. En í fótbolta skiptir niðurstaðan máli og ég er fyrstur til þess að viðurkenna í þessum fjórum leikjum eigum við að fá fleiri stig en núll stig. Ef það á að kenna einhverjum um þá er það ég, ég held að strákarnir á vellinum gáfu allt í þetta."
„Ég verð fyrstur til þess að líta í spegil og segja að ég get gert betur og ég þarf að gera betur."
