Fotbolti.net
03.08.26 - 20:12
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Jónatan opnaði markareikninginn sinn með glæsilegri vippu

Jónatan opnaði markareikninginn sinn með glæsilegri vippu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jónatan Ingi Jónsson skoraði sitt fyrsta mark fyrir Val í sumar þegar hann jafnaði metin í 1-1 gegn Stjörnunni. Þannig er staðan í hálfleik.

Liðin eigast við á Hlíðarenda en Benedikt Warén kom Stjörnunni yfir eftir stundafjórðung.
Lestu um leikinn: Valur 2 - 2 Stjarnan
Jónatan Ingi, sem hefur verið í meiðslavandræðum, er að spila sinn sjötta leik í deildinni í sumar. Hann jafnaði metin níu mínútum eftir mark Benedikts.

„Svaka hár bolti frá Nakkim, þetta var frábært. Hái boltinn beint á Veseli sem var komin í 1v1 stöðu á móti Árna en snertingin var léleg og hann missir stjórn á boltanum. Örvar Logi potar í boltann og hann fer beint á Jónatan sem vippar yfir Árna sem var kominn smá út úr markinu," skrifaði Arngrímur Alex Ísberg Birgisson í textalýsingunni á Fótbolti.net.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.