Fotbolti.net
03.08.26 - 22:32
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Lagði upp sigurmarkið - „Aðeins sætara að taka þetta í lokin"

Auglýsing
Lagði upp sigurmarkið - „Aðeins sætara að taka þetta í lokin"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Benedikt Waren skoraði eitt mark og kom með tvær stoðsendingar þegar Stjarnan sigraði Val á Hlíðarenda í kvöld. Waren ræddi við Fotbolta.net eftir sigurinn.

Lestu um leikinn: Valur 2 - 3 Stjarnan

„Gaman að ná sigri, búið að vera erfitt hjá okkur í sumar."

Áttu þið skilið að vinna?

„Já mér fannst við eiga að vera vinna miklu stærra í fyrri hálfleik. Við vorum kjánar að nýta ekki færin, annars erum við betri en þeir."

Átti Stjarnan að klára þetta í fyrri hálfleik?

„Já, það hefði verið fínt. Ef við myndum klára bara færin, fáum fullt af færum í leiknum og erum ekki alveg að ná að nýta, þess vegna erum við ekki að skora fleiri mörk. En skiptir ekki máli, náðum sigrinum þannig það er bara gott."

Eitt mark og tvær stoðsendingar, hvernig líður þér með það?

„Já mér líður mjög vel, það er gott að geta hjálpað liðinu og gríðarlega mikilvægt að vinna leiki, maður er í þessu fyrir þetta, geggjað."

Stjarnan skoraði sigurmarkið á 94. mínútu.

„Þetta er það skemmtilegasta sem maður gerir er að spila fótbolta. En það er ekki gaman að tapa leikjum, þannig að þetta er aðeins sætara að taka þetta í lokin, þetta er geggjað."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.