Fotbolti.net
03.08.26 - 16:00
Brynjar Ingi Erluson
Spænski boltinn

Leipzig gagnrýnir Romano - „Þetta er einfaldlega rangt“

Leipzig og Real Madrid eru ekki búin að ná saman um Diomande

Leipzig og Real Madrid eru ekki búin að ná saman um Diomande

Canon

Mynd: EPA

Marcel Schäfer, yfirmaður íþróttamála hjá RB Leipzig í Þýskalandi, skýtur föstum skotum á ítalska blaðamanninn Fabrizio Romano og segir hann það einfaldlega rangt að skipti Yan Diomande til Real Madrid séu frágengin.
Fréttamaður Sky lætur Romano heyra það - „Varst fyrirmynd mín en ekki lengur“
TENGT EFNI

Fréttamaður Sky lætur Romano heyra það - „Varst fyrirmynd mín en ekki lengur“

Romano notaði á dögunum frasann „Here we go!“ um fyrirhuguð félagaskipti Yan Diomande til Real Madrid.

Frasinn merkir að samkomulag sé í höfn og aðeins eigi eftir að ganga frá formsatriðum.

Þýskir fjölmiðlar hafa hins vegar haldið því fram að það sé ekki rétt og að Leipzig hafi ekki enn samþykkt tilboð Real Madrid. Málið leiddi til harðra orðaskipta milli Romano og Florian Plettenberg hjá Sky og virðist Ítalinn hafa fallið í áliti hjá nokkrum starfsbræðrum sínum vegna vinnubragðanna.

Romano fékk síðan annað högg í dag þegar Schäfer staðfesti að ekkert samkomulag væri í höfn um Diomande.

„Nokkrir svokallaðir félagaskiptasérfræðingar greindu frá því fyrir nokkrum dögum að samkomulag væri í höfn og setti einn „Here we go!“ við félagaskiptin. Það er einfaldlega rangt. Við erum ekki komin á það stig enn,“ sagði Schäfer.

Nýjustu fréttir af mögulegum skiptum Diomande eru þær að félögin eru áfram í viðræðum en leikmaðurinn hefur ekki mætt til æfinga á meðan unnið er að lausn á framtíð hans.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.