Fotbolti.net
03.08.26 - 15:55
Brynjar Ingi Erluson

Lengjudeildin: Grótta gerði góða ferð á Ísafjörð

Mattías Kjeld skoraði níunda deildarmark sitt. Hann er aðeins 16 ára gamall.

Mattías Kjeld skoraði níunda deildarmark sitt. Hann er aðeins 16 ára gamall.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Vestri 0 - 3 Grótta
0-1 Kristófer Dan Þórðarson ('1 )
0-2 Caden Robert McLagan ('25 )
0-3 Mattías Kjeld ('85 )
Lestu um leikinn
Grótta vann annan deildarleikinn í röð þegar liðið lagði Vestra að velli, 3-0, á Kerecis-vellinum á Ísafirði í Lengjudeild karla í dag.

Gestirnir brutu ísinn áður en mínúta var liðin. Björgvin Brimi Andrésson komst í góða fyrirgjafarstöðu og sendi boltann fyrir á Kristófer Dan Þórðarson sem skallaði hann í hægra hornið.

Jafnræði var með liðunum næstu mínúturnar. Vestramenn komu sér í ágætar stöður en færasköpunin meiri hjá Gróttu.

Þegar um 25 mínútur voru liðnar bætti Grótta við öðru marki. Caden Robert McLagan kom sér á nærstöngina og stangaði hornspyrnu Gríms Inga Jakobssonar í netið.

Staðan var 2-0 í hálfleik en Gróttumenn héldu áfram að skapa sér færi í þeim síðari. Marvin Darri Steinarsson stóð þó fyrir sínu í marki Vestra og varði nokkrum sinnum vel.

Heimamenn vildu tvívegis fá vítaspyrnu. Í fyrra skiptið féll Gunnar Jónas Hauksson í teignum eftir viðskipti við Grím en lítið virtist vera í því. Síðar féll Þórður Gunnar Hafþórsson eftir baráttu við nokkra leikmenn Gróttu, en það atvik var mun óljósara en ekkert dæmt í báðum atvikum.

Fimm mínútum fyrir leikslok gerði Grótta endanlega út um leikinn. Andri Freyr Jónasson vann sig vel inn í vítateig Vestra og fann hinn 16 ára gamla Mattías Kjeld. Hann lék á Marvin og skoraði sitt níunda deildarmark í sumar.

Seltirningar fögnuðu þar með öruggum 3-0 sigri. Þeir eru áfram í sjötta sæti en nú með 25 stig, fjórum meira en Vestri sem er sæti neðar.
Grótta er í góðum málum

Grótta er í góðum málum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Þróttur R.16+2033
2Fylkir16+1233
3Afturelding15+1931
4HK16+928
5Njarðvík16+326
6Grótta15+425
7Vestri16-821
8Leiknir R.16-519
9Grindavík16-417
10ÍR16-916
11Völsungur16-1711
12Ægir16-248
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.