Rúnar Páll: Við erum ekkert að fara fram úr okkur

Rúnar Páll

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Rúnar Páll

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Rúnar Páll og hans menn í Gróttu fóru vestur á Ísafjörð fyrr í dag og unnu þar 3-0 sannfærandi sigur á Vestra. Grótta spilaði góðan leik og voru vel skipulagðir.
Fótbolti.net ræddi við Rúnar Pál þjálfara Gróttu eftir leikinn.
„Hrikalega stoltur af drengjunum, þetta var mjög góð frammistaða í dag og við vorum helvíti þéttir og góðir í dag". Sagði Rúnar eftir góðan sigur.
Vestri var meira með boltann í dag og Grótta lágu niðri og beittu skyndisóknum. Grótta varðist mjög vel í leiknum og leið vel í varnarleiknum í dag.
„Þeir sköpuðu ekki neitt, ég man ekki eftir neinu færi sem þeir fengu. Við vörðumst vel, við nýttum við skyndisóknirnar vel og skorum þrjú góð mörk. Við vorum mjög góðir í dag og ég er ánægður með það að koma hingað og taka þrjú stig. Það er erfitt að koma hingað, það er ferðalag og við erum búnir að vera í smá pásu sem við komum ótrúlega vel úr".
Fyrsta mark Gróttu kom eftir um 50 sekúndur, það hlýtur að hafa verið gott að sjá það?
„Já það var mjög gott að sjá það, rúmar 50 sekúndur, skorum fínt mark úr hornspyrnu og þá vorum við komnir í þægilega stöðu. Vestri voru ekkert að ógna á bakvið okkur eða gera neitt svo þetta var nokkuð þægilegt".
Eftir leikinn í dag er Grótta einu stigi frá umspilssæti, þvert á allar spár, þið hljótið að vera horfa til þess að komast í umspilið úr þessu?
„Við förum inn í alla leiki til að fá góða frammistöðu, síðan eigum við leik við Þrótt á næstu helgi sem er mjög öflugt lið. Við erum ekkert að fara fram úr okkur, það er bara einn leikur í einu".
Tristan Freyr Ingólfsson leikmaður Gróttu kom til baka eftir nokkra leikja fjarveru. Tristan hefur verið frábær á tímabilinu með Gróttu, það hlýtur að vera gott að fá hann til baka?
„Það er mjög gott að fá Tristan til baka, það eru flest allir heilir hjá okkur og það er sterkt fyrir hópinn að vera með allan mannskapinn. Það er gott fyrir lokabaráttuna, við erum að spila fullt af leikjum í ágúst, sjö leiki og við þurfum á öllum að halda".
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum fyrir ofan.
