Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 03. september 2020 16:15
Fótbolti.net
Lið 12. umferðar: Þróttarar áberandi
Clara Sigurðardóttir
Clara Sigurðardóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Shameeka Fishley
Shameeka Fishley
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjórir leikir fóru fram í 12. umferð Pepsi Max-deildar kvenna um síðustu helgi en leik KR og Breiðabliks var frestað. Þróttur R. vann mikilvægan sigur á Fylki og Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar, er þjálfari umferðarinnar.

Ólöf Sigríður Kristinsdóttir og Stephanie Mariana Ribeiro voru báðar á skotskónum fyrir Þrótt auk þess sem Morgan Goff átti góðan leik í vörninni.

Selfoss lagði 1-0 þar sem Anna Björk Kristjánsdóttir og Clara Sigurðardóttir voru bestar í liði heimastúlkna.

Valur skellti sér á toppinn með 2-0 sigri á Þór/KA. Elín Metta Jensen skoraði bæði mörkin og Hallbera Guðný Gísladóttir var maður leiksins. Arna Sif Ásgrímsdóttir var best hjá heimastúlkum.

Erin McLeod markvörður Stjörnunnar er leikmaður umferðarinnar eftir að hafa lokað markinu í 1-0 sigri á ÍBV. Shameeka Fishley skoraði sigurmarkið í lokin og Jasmín Ingadóttir átti góðan leik á miðjunni.

Sjá einnig:
Lið 1. umferðar
Lið 2. umferðar
Lið 3. umferðar
Lið 6. umferðar
Lið 7. umferðar
Lið 8. umferðar
Lið 10. umferðar
Lið 11. umferðar
Athugasemdir
banner