Fotbolti.net
03.09.23 - 17:42
Hafliði Breiðfjörð

Ómar Ingi: Var skrítið að vona að honum gangi ekki vel

Auglýsing
Ómar Ingi Guðmundsson.

Ómar Ingi Guðmundsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<i>„Við gáfum ekki mikið af færum á okkur en á móti Val verðum við að nýta stöðurnar sem við fáum betur og missa ekki einbeitinguna eins og í þessum tveimur mörkum sem þeir skoruðu,"</i> sagði Ómar Ingi Guðmundsson þjálfari HK eftir 4 - 1 tap gegn Val úti í Bestu-deild karla í dag.

„Þó þeir hafi verið mikið með boltann þá er ekki eins og þeir hafi verið að skapa dauðafæri. Valur er það gæðamikið lið að það er ekki sekúnda sem þú getur gleymt þér."

HK var án Leifs Andra Leifssonar fyrirliða sem er meiddur eins og Birkir Valur og framherjinn markheppni Anton Hojberg var veikur heima. HK er ekki með það mikla breidd að þeir þoli öll þessi forföll?

„Nei, en samt voru Beggi (Sigurbergur Áki Jörundsson) og (Ahmad) Faga að standa sig vel, Kristján (Snær Frostason) hefur staðið sig vel meðan Birkir Valur hefur verið frá. Atli Hrafn spilaði líka lengst af frammi áður en Anton kom. Auðvitað er ekki besta staðan að vera án þessara þriggja manna. Leifur er fyrirliði liðsins og Birkir varafyrirliði, uppaldir leikmenn sem binda saman varnarleikinn okkar og svo eins og Anton hefur komið inn í þetta er þetta óheppilegt. Á móti verðum við að vonast til að menn geri eins og Kristján og standi sig vel, Kalli kom fínt inná og Ísak líka svo ungu strákanir fá tækifæri til að þroskast og þróast."

Er þetta alvarlegt hjá þeim þremur sem forfölluðust?

„Anton er veikur og hefur verið það alla vikuna. Leifur rifbeinsbrotnaði um daginn og hékk saman á lyginni á móti FH og ÍBV. Það var ekki hægt að spila honum í dag, Birkir fékk í hnéð í lendingu í FH-leiknum og vonandi verða þeir klárir eftir landsleikjahlé."

Ómari Ingi fékk að horfa upp á bræður sína koma inná í leiknum en í sitthvort liðið. Orri Sigurður Ómarsson kom inná hjá Val á 55. mínútu en hann hefur verið lengi meiddur. Yngsti bróðirinn Ísak Aron Ómarsson kom inn hjá HK á 82. mínútu.

„Það var misgaman og skrítin staða til að vera í. Það er nýtt fyrir mér að óska þess að miðjubróðurnum gangi ekkert sérstaklega inni á velli. Hann spilaði Lengjubikarleik á móti okkur í fyrra og mér fannst það ekki þægilegt svo ég var aðeins undirbúnari undir þetta en ég þjálfaði hann upp nánast alla yngri flokkana og hef fylgst með honum og séð nánast hvern einasta leik með honum. Yfirleitt vonast ég til að honum gangi vel en ég vonaðist ekki til þess í dag. Það er gott fyrir hann að vera að komast á fætur og að taka inn mínútur undanfarið."

Bentirðu þeim sem komu inná á veikleikana hans? „Nei í rauninni ekki. Það er skrítið að voanst til að honum gangi ekki vel. Það var sérstakt að vera með þá báða inni á vellinum."

Orri Sigurður kom inná hjá Val í dag.

Orri Sigurður kom inná hjá Val í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.