03.09.26 - 23:07
Ívan Guðjón Baldursson
4. deild: Álftanes sófameistari

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Mynd: Hanna Sím

Mynd: ÍH

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Álftanes er búið að tryggja sér titilinn í 4. deild eftir að Hamar gerði jafntefli við Elliða fyrr í kvöld, í næstsíðustu umferð tímabilsins.
Álftanes er því með fjögurra stiga forystu fyrir lokaumferðina og tryggir sér titilinn. Hamar endar í öðru sæti og fara liðin saman upp í 3. deild.
Hamar náði forystunni snemma leiks á útivelli gegn Elliða í kvöld en heimamenn jöfnuðu í seinni hálfleik og urðu lokatölur 1-1. Elliði siglir lygnan sjó í fjórða sæti.
Það er enn spenna í fallbaráttunni eftir stórsigur Álafoss á útivelli gegn Úlfunum, en staðan var markalaus í leikhlé. Álafoss lyftir sér úr botnsætinu með sigrinum en þarf sigur í lokaumferðinni til þess að eiga möguleika á að bjarga sér.
Daníel Ingi Jónsson var atkvæðamestur í fjögurra marka sigri Álafoss og er liðið með 11 stig eftir 17 umferðir, þremur stigum frá öruggu sæti eftir að ÍH lagði KFR að velli.
Hafnfirðingar lentu tveimur mörkum undir snemma leiks en jöfnuðu metin í uppbótartíma fyrri hálfleiks áður en sigurmarkið leit dagsins ljós snemma í síðari hálfleiks. Lokatölur 3-2 og var Elmar Rútsson atkvæðamestur með tvennu.
ÍH er því með 14 stig fyrir lokaumferðina, þremur stigum meira heldur en Álafoss, en Álafoss er með betri markatölu.
ÍH heimsækir Vængi Júpíters í lokaumferðinni á meðan Álafoss tekur á móti botnliði Hafna, sem féll fyrr í kvöld.
Vængir Júpíters unnu 1-3 til að fella Hafnir og sigla lygnan sjó í fimmta sæti deildarinnar.
Elliði 1 - 1 Hamar
0-1 Óliver Þorkelsson ('9 )
1-1 Snorri Geir Ríkharðsson ('59 )
Úlfarnir 0 - 4 Álafoss
0-1 Daníel Ingi Jónsson ('46 )
0-2 Daníel Ingi Jónsson ('53 )
0-3 Safír Freyr Jónsson ('66 )
0-4 Heiðmar Trausti Elvarsson ('69 )
ÍH 3 - 2 KFR
0-1 Þórður Kalman Friðriksson ('11 )
0-2 Unnar Jón Ásgeirsson ('17 )
1-2 Elmar Rútsson, víti ('45+1)
2-2 Úlfar Kristmundsson ('45+3 )
3-2 Elmar Rútsson ('50 )
Hafnir 1 - 3 Vængir Júpiters
0-1 Arnar Ragnars Guðjohnsen ('20 )
0-2 Brynjar Lár Bjarnason ('43 )
1-2 Jón Kristján Harðarson ('49 )
1-3 Óskar Dagur Jónasson ('85 )