03.09.26 - 11:39
Kári Snorrason
Barcola valdi treyjunúmer eftir gervileikmanni í FIFA

Mynd: Liverpool

Mynd: Liverpool
Bradley Barcola mun klæðast treyju númer 29 hjá Liverpool eftir að hann gekk í raðir félagsins frá PSG á dögunum.
Barcola klæddist einnig númerinu 29 hjá Parísarliðinu. Ástæðan fyrir því að Frakkinn heldur upp á númerið er tengd tölvuleiknum FIFA.
Í leiknum var hægt að spila sem gervileikmaðurinn Alex Hunter fyrir nokkrum árum en Hunter klæddist einmitt treyju númer 29.
„Þegar ég var krakki þá spilaði ég mikið FIFA. Ég lofaði sjálfum mér að nota sama treyjunúmer og Alex Hunter. Ég er mjög ánægður með að númerið hafi verið laust,“ sagði Barcola við miðla Liverpool aðspurður um númerið.

TENGT EFNI
Barcola í hóp á morgun - „Langaði mjög mikið í Liverpool“

Alex Hunter.

Mynd: Google/Engadget