Fotbolti.net
03.09.26 - 10:02
Elvar Geir Magnússon

Bjuggu til rússíbana í stúkunni sem táknaði stormasama sögu félagsins

Sjáðu myndbandið neðst í fréttinni

Rússíbanabrautin í Osnabruck.

Rússíbanabrautin í Osnabruck.

Canon

Mynd: X

Það eru fáir betri en þýskir stuðningsmenn í að skapa mósaíkmyndir og listaverk í stúkunni en stuðningsmenn C-deildarliðsins VfL Osnabruck fóru nýjar leiðir þegar leikið var gegn stórliðinu Bayern München í þýska bikarnum.

Þeir bjuggu til rússíbana í stúkunni og héldu alvöru sýningu, eins og við fjölluðum aðeins um í gærkvöldi. Á rússíbananum var borði sem á stóð: 'VfL Osnabruck – rússíbanareið!' og á honum var trévagn sem fór eftir brautinni á Bremer Brücke leikvanginum.

Stuðningsmenn segja að þessi gjörningur tákni stormasama sögu félagsins sem hafi verið rússíbanareið, full af upp- og niðursveiflum. Brautin var með ýmsum smáatriðum, þar á meðal var ljósmyndastöð sem tók mynd af vagninum þegar hann fór framhjá og birtist myndin á skjá á vellinum.

Brautin var tekin niður rétt fyrir upphafsflaut en gleðin hélt áfram hjá stuðningsmönnum liðsins enda komst Osnabruck yfir í leiknum. En stórveldi Bayern vann að lokum 4-1 sigur þar sem Harry Kane skoraði tvívegis.
Þýski bikarinn: Sýning fyrir leik og draumamark dugði skammt gegn Bayern
TENGT EFNI

Þýski bikarinn: Sýning fyrir leik og draumamark dugði skammt gegn Bayern

Bjuggu til rússíbana í stúkunni sem táknaði stormasama sögu félagsins
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.