Breki komið Jónasi rosalega á óvart - Keflavík fær góða prósentu af næstu sölu

Hann er rosalega þroskaður leikmaður sem hefur tekið gríðarlegum framförum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er erfitt að missa Breka sem leikmann en á sama tíma erum við stoltir að Breki sé að taka þetta skre

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þegar leikmenn vilja fara, sem var viljinn hjá Breka, þá finnum við lausn á því og leyfum honum að halda áfram

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jónas Guðni spilaði með Keflavík, KR og Halmstad á sínum ferli.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Það er mikið horft á okkur og ég held að við séum að gera frábæra hluti

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hann er rosalega þroskaður leikmaður sem hefur tekið gríðarlegum framförum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hann er 21 árs og hafði fyrr á sínum ferli spilað sem framherji. Hann fann sig vel á láni hjá ÍBV frá Stjörnunni í fyrra og var keyptur til Keflavíkur síðasta vetur.
Fótbolti.net ræddi við Jónas Guðna Sævarsson, yfirmann fótboltamála hjá Keflavík, um Breka.

Breki Baxter til Noregs (Staðfest)
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er kaupverðið ekkert sérstaklega hátt en Keflavík fær nokkuð stóra prósentu af mögulegri næstu sölu á leikmanninum. Er rétt að Keflavík fær háa prósentu af næstu sölu?
„Já. Þetta er þannig félag, hann er að taka skref til liðs sem er um miðja deild í 1. deildinni í Noregi. Þetta er lið sem er mjög svipað og Keflavík hvað varðar að sækja til sín unga leikmenn sem vilja fá tækifæri og halda svo áfram í stærri lið. Þeir hafa verið að selja leikmenn áfram í stærri félög. Við lögðum þetta þannig upp að við fáum góða prósentu af næstu sölu."
Skiptir staða Keflavíkur í deildinni máli þegar kemur að því að samþykkja tilboðið?
„Það hjálpar til, en það gerði ekki útslagið. Við vorum meira að horfa á það að þarna var tækifæri. Við viljum standa fyrir því að leyfa mönnum að koma hingað, springa út og fara svo áfram án þess að staðið sé í vegi fyrir þeim þegar svona tækifæri gefast. Þegar leikmenn vilja fara, sem var viljinn hjá Breka, þá finnum við lausn á því og leyfum honum að halda áfram."
„Á móti erum við með stóran hóp af leikmönnum, það er mikil samkeppni. Þó að það sé mjög erfitt að missa Breka þá vil ég meina að við séum með leikmenn sem stíga inn og taka hlutverkið hans Breka."
Jónas spilaði sem miðjumaður á sínum ferli. Hvernig er að sjá Breka leysa það hlutverk svona vel?
„Það hefur komið mér rosalega á óvart hversu öflugur miðjumaður hann er, frábær karakter, ótrúlega góður í fótbolta, góður í að fá boltann, skilar honum vel frá sér og virkilega vel staðsettur miðað við að hann er ekki eldri en hann er. Hann er rosalega þroskaður leikmaður sem hefur tekið gríðarlegum framförum sem gaman er að sjá."
Eruð þið með þessu að sýna fordæmi að ungir leikmenn geta séð Keflavík sem stökkpall?
„Ég held að allir sjái það að við erum klúbbur sem opnar á tækifæri fyrir unga stráka sem eru kannski ekki að fá tækifærin í stærri liðunum á Íslandi. Þeir geta komið hingað inn í flott lið sem ætlar sér stóra hluti. Þegar ungir menn koma með metnað inn í gott lið þá springa þeir út. Ég held við höfum sýnt það á þessu tímabili og dæmin eru nokkur. Davíð (Helgi Aronsson) kom, stóð sig og fór út, Eiður (Orri Ragnarsson) stendur sig og er seldur til Víkinga og núna Breki. Það gætu svo orðið fleiri. Það er mikið horft á okkur og ég held að við séum að gera frábæra hluti."
Ertu búinn að eyrnamerkja einhver skotmörk sem þú vilt fá inn í vetur?
„Við erum að horfa í það, það verða miklar breytingar á liðinu, en við viljum reyna halda kjarnanum. En við þurfum að tékka hvort það séu ekki fleiri sem vilja koma til okkar í vetur," segir Jónas Guðni.

Það er erfitt að missa Breka sem leikmann en á sama tíma erum við stoltir að Breki sé að taka þetta skre

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þegar leikmenn vilja fara, sem var viljinn hjá Breka, þá finnum við lausn á því og leyfum honum að halda áfram

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jónas Guðni spilaði með Keflavík, KR og Halmstad á sínum ferli.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Það er mikið horft á okkur og ég held að við séum að gera frábæra hluti

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
