Fotbolti.net
03.09.26 - 22:00
Ívan Guðjón Baldursson

Cole Campbell þakkar Jesús fyrir fyrsta markið

Cole Campbell þakkar Jesús fyrir fyrsta markið
Canon

Mynd: EPA

Íslenski Bandaríkjamaðurinn Cole Campbell var keyptur til Elversberg, nýliða þýsku deildarinnar, í sumar eftir að hafa verið samningsbundinn Borussia Dortmund síðustu tvö ár.
Þýskaland: Ísak lék allan leikinn - Campbell skoraði
TENGT EFNI

Þýskaland: Ísak lék allan leikinn - Campbell skoraði

Hann var í byrjunarliðinu í fyrstu umferð deildartímabilsins og skoraði eftir níu mínútna leik. Hann gerði annað mark leiksins í fræknum 3-2 sigri á heimavelli gegn Bayer Leverkusen.

Frábær frumraun hjá Cole sem nýtti tækifærið og birti færslu á Instagram til að fagna fyrsta markinu sínu. Þar lofar hann Jesús og vitnar í biblíuna.

„Þakka þér fyrir Jesús. Fyrsti byrjunarliðsleikurinn í Bundesliga. Fyrsta markið í Bundesliga. Ég er svo þakklátur fyrir að fá að upplifa þessa stund. Öll dýrð sé þeim æðsta," segir í færslu hans á Instagram.


Cole Campbell þakkar Jesús fyrir fyrsta markið
Canon

Mynd: Elversberg

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.