03.09.26 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Draumalið leikmanna án félags - Fimm Englandsmeistarar

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Félagaskiptaglugginn lokaði um mánaðarmótin í stærstu deildum Evrópu.
Það eru mörg stór nöfn sem eru án félags ennþá en félagaskiptaglugginn í Sádi-Arabíu sem dæmi lokar þann 6. september.

BBC tók saman mörg af stærstu nöfnum heims sem eru án félags. Þar má nefna Raheem Sterling sem átti erfitt uppdráttar hjá Feyenoord eftir vondan tíma hjá Chelsea.
Þá eru Dani Carvajal og David Alaba, sem yfirgáfu Real Madrid eftir síðasta tímabil, enn án félags. Sama má segja um Real Madrid goðsögnina Sergio Ramos sem spilaði síðast með Monterrey í Mexíkó.
Oleksandr Zinchenko, fyrrum leikmaður Arsenal, er án félags eftir sex mánuði hjá Ajax þar sem hann kom aðeins við sögu í tveimur leikjum.
Þá eru Georginio Wijnaldum, Paul Pogba, Philippe Coutinho, Anthony Martial, Riyad Mahrez, Karim Benzema og fleiri góðir í leit að næsta áfangastað.