Fotbolti.net
03.09.26 - 17:30
Elvar Geir Magnússon

Ganverjar endurráða Carlos Queiroz

Ganverjar endurráða Carlos Queiroz
Canon

Mynd: EPA

Carlos Queiroz hefur verið endurráðinn sem landsliðsþjálfari Gana.

Queiroz er 73 ára og er fyrrum aðstoðarmaður Sir Alex Ferguson hjá Manchester United.

Hann tók við ganverska landsliðinu í apríl og kom því í 32-liða úrslit HM þar sem það tapaði 1-0 gegn Kólumbíu.
Queiroz virtist tilkynna um brotthvarf sitt á samfélagsmiðlum en fótboltasamband Gana hefur eftir viðræður ákveðið að ráða hann aftur.

Queiroz hefur þjálfað landslið Írans, Portúgals, Egyptalands, Suður-Afríku, Kólumbíu og Katar.

„Það er stolt og heiður að vera í þessu starfi. Að stýra Gana er miklu meira en að þjálfa fótboltalið," segir Queiroz.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.