03.09.26 - 09:04
Elvar Geir Magnússon
Gera hlé á leikjum til að klappa fyrir Messi

Messi fær flugferð frá félögum sínum.

Mynd: EPA

Messi með heimsmeistarabikarinn.

Mynd: EPA

Messi fær flugferð frá félögum sínum.

Mynd: EPA
Argentínska fótboltadeildin ætlar að heiðra goðsögnina Lionel Messi með því að gera hlé eftir 10 mínútna leik í öllum leikjum deildarinnar um helgina. Þá verður klappað fyrir Messi í eina mínútu.
Messi tilkynnti á dögunum að hann hefði lagt landsliðsskóna á hilluna en þessi 39 ára fótboltamaður klæddist treyju númer 10 í landsliði Argentínu.

TENGT EFNI
Messi leggur landsliðsskóna á hilluna (Staðfest)
Messi vann Ballon d'Or gullboltann átta sinnum sem besti leikmaður heims en hann var fyrirliði Argentínu sem vann HM í Katar 2022.
Messi lék 207 landsleiki og auk þess að vinna HM þá vann hann Copa America tvívegis. Hans fyrsti landsleikur var 2005 gegn Ungverjalandi í 2-1 sigri í vináttulandsleik. Hans síðasti landsleikur var tapleikurinn gegn Spáni í úrslitaleik HM í sumar.
Messi er næstmarkahæstur í sögu HM með 21 mark. Hann mun halda áfram að spila með félagsliði sínu, Inter Miami í bandarísku MLS-deildinni, þar sem hann er samningsbundinn út tímabilið 2028.