03.09.26 - 14:07
Kári Snorrason
HK í sérstökum ÍK treyjum á laugardaginn
50 ára afmælisleikur ÍK

Arnþór Ari og Atli Hrafn í ÍK treyjunni.

Mynd: HK

Arnþór Ari og Atli Hrafn í ÍK treyjunni.

Mynd: HK

Lokaumferð Lengjudeildarinnar fer fram næstkomandi laugardag og mun HK taka á móti Fylki í sérstökum afmælisleik fyrir Íþróttafélag Kópavogs.
HK mun leika í grænum og hvítum ÍK treyjum í tilefni þess að hálf öld eru liðin frá því að félagið var stofnað. ÍK var starfrækt frá 1976 til 1991 og lagði grunninn að að því sem síðar varð knattspyrnudeild HK.
Þess má geta að Finnur Tómas Pálmason, leikmaður KR, gekk inn á völlinn í ÍK treyjunni sem um ræðir fyrir stórleik KR og Víkings á þriðjudag í tilefni treyjudaga Bestu deildarinnar.

Treyjan er góðgerðatreyja og rennur allur hagnaður af sölu hennar óskiptur til barna- og unglingastarfs HK. Nú þegar hafa safnast hátt í 2,5 milljónir króna.
Dagskrá í Kórnum hefst klukkan 12:00 á laugardaginn en leikurinn sjálfur hefst á slaginu 14:00.
Dagskrá í Kórnum hefst klukkan 12:00 á laugardaginn en leikurinn sjálfur hefst á slaginu 14:00.
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Afturelding | 21 | +33 | 45 |
| 2 | Þróttur R. | 21 | +23 | 40 |
| 3 | Fylkir | 21 | +14 | 40 |
| 4 | HK | 21 | +11 | 35 |
| 5 | Njarðvík | 21 | +8 | 35 |
| 6 | Leiknir R. | 21 | +2 | 28 |
| 7 | Grótta | 21 | -5 | 27 |
| 8 | Vestri | 21 | -11 | 27 |
| 9 | ÍR | 21 | -7 | 25 |
| 10 | Grindavík | 21 | -10 | 24 |
| 11 | Völsungur | 21 | -14 | 23 |
| 12 | Ægir | 21 | -44 | 8 |