Fotbolti.net
03.09.26 - 12:29
Elvar Geir Magnússon

Mikil ánægja með Bosníumanninn

Sergej Jakirovic er að framlengja við Hull.

Sergej Jakirovic er að framlengja við Hull.

Canon

Mynd: EPA

Nýliðar Hull City fara vel af stað í ensku úrvalsdeildinni og hafa unnið fyrstu tvo leiki sína í ensku úrvalsdeildinni. Liðið fór af stað á flugi með 2-0 sigri gegn Manchester United.

Mikil ánægja er í Hull með stjórann Sergej Jakirovic sem er frá Bosníu og Hersegóvínu. Hann er að gera nýjan þriggja ára samning við félagið.

„Ég skrifa undir mjög bráðlega. Þetta er auðveld ákvörðun," segir Jakirovic.
Undir stjórn Jakirovic vann Hull 1-0 sigur gegn Middlesbrough á Wembley á síðasta tímabili, í úrslitaleiknum í umspilinu, og komst upp í ensku úrvalsdeildina.

Zakirovic er 49 ára og stýrði Dinamo Zagreb meðal annars áður en hann tók við Hull á síðasta ári.

„Ég er hæstánægður með að glugginn sé lokaður, nú getum við einbeitt okkur að okkar vinnu. Það hafa orðið miklar breytingar á liðinu frá síðasta tímabili," sagði Jakirovic á fréttamannafundi í morgun.

Næsta verkefni Hull er að mæta Aston Villa klukkan 16:30 á laugardaginn.
Mikil ánægja með Bosníumanninn
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Brentford11+917
7Leeds11+517
8Chelsea11016
9Everton11-216
10Tottenham11+115
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.