Fotbolti.net
03.09.26 - 13:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Mögulega ruglaðasti náungi sem ég veit um"

Acun Ilicali, eigandi Hull City.

Acun Ilicali, eigandi Hull City.

Canon

Mynd: Hull City

Acun Ilicali, eigandi Hull City, hefur vakið mikla athygli í sumar þar sem hann talaði mjög opinskátt um áætlanir Hull á leikmannamarkaðnum.

Ilicali, sem hefur verið kallaður „Simon Cowell Tyrklands“, er ein þekktasta persóna heimalands síns. Hann er sjónvarpsstjarna sem keypti Hull City árið 2022 og er mjög ástríðufullur gagnvart félaginu.
„Þessi maður er mögulega ruglaðasti náungi sem ég veit um. Hann segir bara það sem honum sýnist og stendur við það," sagði Friðleifur Friðleifsson, stuðningsmaður Hull City, í Enski boltinn hlaðvarpinu hér á Fótbolta.net á dögunum.

„Glugginn var að loka. Hann kastaði inn á X: „Verið tilbúin, við erum að fá fimm nýja leikmenn." Það er enginn annar að þessu. Þetta er svo fyndinn náungi. Það er búin að myndast hrikalega mikil stemning eftir að hann keypti félagið og hann hefur snúið þessu sér í hag."

Ilicali var duglegur að upplýsa stuðningsmenn Hull um það í sumar hvaða leikmenn væru á lista hjá félaginu og hverjir ekki. Hann setti svo inn skemmtilega færslu þegar glugginn lokaði fyrr í vikunni.

„Ég lofaði honum að ég myndi fá 15 nýja leikmenn inn í sumar. Mér mistókst það... Við fengum 18 leikmenn!" skrifaði Ilicali á X eftir að glugginn lokaði en loforðið var til Sergej Jakirovic, stjóra Hull, sem er að við það að skrifa undir nýjan samning við félagið.

Hull fékk 18 nýja leikmenn inn í sumar.

Hull fékk 18 nýja leikmenn inn í sumar.

Canon

Mynd: EPA

Enski boltinn - Hull í draumalandi og glugganum lokað

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.