03.09.26 - 08:58
Elvar Geir Magnússon
Pulsan góða komin ofan á Laugardalsvöll

Haustboðinn ljúfi.

Mynd: Instagram/laugardalsvollur

Haustboðinn ljúfi.

Mynd: Instagram/laugardalsvollur
Það er nóg framundan á Laugardalsvelli með haustinu, bikarúrslitaleikir eru á næsta leyti ásamt úrslitaleiknum í umspili Lengjudeildarinnar og landsleikjum.
Vallarstarfsmenn á Laugardalsvelli sjá til þess að völlurinn sé í sínu besta standi fyrir komandi leiki og er búið að setja pulsuna frægu ofan á hybrid grasið.
Hingað til hefur KSÍ fengið pulsuna á leigu en nú hefur sambandið fest kaup á henni.

„KSÍ hefur fest kaup á pulsunni góðu eða MacLeod Covers frá Sports&Stadia. Starfsfólk Laugardalsvallar hefur verið á fullu í vikunni að setja búnaðinn upp ásamt starfsmönnum Sports&Stadia. Þetta er gríðarlega mikilvæg viðbót við vallarbúnað Laugardalsvallar og mun hjálpa mikið við þá vetrarvinnu sem hefur aukist síðustu ár," segir á Instagram síðu Laugardalsvallar.