Fotbolti.net
03.09.26 - 17:40
Ívan Guðjón Baldursson

Richarlison ekki skráður í úrvalsdeildarhópinn

Richarlison ekki skráður í úrvalsdeildarhópinn
Canon

Mynd: EPA

Richarlison er ekki partur af leikmannahópi Tottenham Hotspur sem hefur verið skráður til leiks fyrir úrvalsdeildartímabilið á Englandi. Hann er að skipta yfir í tyrkneska boltann þar sem hann fær veglega launahækkun.
Richarlison „fórnarlamb slæmra sögusagna"
TENGT EFNI

Richarlison „fórnarlamb slæmra sögusagna"

Tottenham á eftir að samþykkja kauptilboð frá Trabzonspor en ljóst er að Richarlison mun ekki spila undir stjórn Roberto De Zerbi í haust, þar sem ekki er hægt að skrá hann í úrvalsdeildarhópinn fyrr en eftir áramót.

Spurs hafnaði fyrstu kauptilboðum Trabzonspor í sóknarmanninn sinn en talið er að úrvalsdeildarfélagið vilji fá 30 milljónir punda fyrir. Richarlison er 29 ára gamall og aðeins með eitt ár eftir af samningi.

Everton reyndi líka að krækja í Richarlison en tókst ekki að ná samkomulagi fyrir gluggalok á Englandi.

Félagaskiptaglugginn í Tyrklandi lokar annað kvöld en í Sádi-Arabíu er hann opinn til sunnudags.

Richarlison samþykkir tilboð frá Tyrklandi - Þrefaldar launin
TENGT EFNI

Richarlison samþykkir tilboð frá Tyrklandi - Þrefaldar launin

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.