03.09.26 - 11:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sterkt byrjunarlið leikmanna sem fóru frá City

Mynd: ESPN

Mynd: ESPN
Það urðu miklar breytingar á leikmannahópi Manchester City í sumar og ESPN setti saman ansi sterkt lið úr leikmönnunum sem fóru frá félaginu í sumar.
Savinho var seldur á hæstu upphæðina og það voru fleiri sölur eins og á Tijjani Reijnders, Nico Gonzalez, James Trafford og þá fór Rodri til Barcelona. Nathan Ake fór þá á ekkert sérstaklega háa upphæð til Fenerbahce.
Omar Marmoush fór á lánssamningi með kaupskyldu til Tottenham, Jack Grealish fór á láni til Everton og Inter kláraði kaupin á Manuel Akanji.
Þeir Bernardo Silva og John Stones fóru þá á frjálsri sölu.

Á móti eyddi City háum upphæðum í Enzo Fernandez, Elliot Anderson, Ayyoub Bouaddi og Iliman Ndiaye. Kantmaðurinn Allan kostaði líka sitt frá Brasilíu.
City er með sex stig eftir fyrstu tvo deildarleikina undir stjórn Enzo Maresca.