Fotbolti.net
03.09.26 - 13:32
Elvar Geir Magnússon

Stjóri Leeds: Þetta er mikið áfall fyrir okkur

Stjóri Leeds: Þetta er mikið áfall fyrir okkur
Canon

Mynd: EPA

Velski miðvörðurinn Joe Rodon fór meiddur af velli þegar Leeds gerði 1-1 jafntefli gegn Brentford í annarri umferð ensku úrvalsdeildarinnar.

„Það eru því miður slæmar fréttir varðandi meiðsli Rodon, alvarleg meiðsli á aftan í læri. Hann verður frá í átta til tíu vikur. Hann mun örugglega ekki spila fyrstu leikina eftir landsleikjagluggann," segir Daniel Farke, stjóri Leeds.

„Þetta er mikið áfall fyrir okkur því hann er lykilmaður fyrir okkur. En svona er fótboltinn og stundum þarf maður að glíma við meiðsli. Hann mun örugglega missa af næstu átta til tíu vikunum líklega.“

Leeds er með fjögur stig að loknum fyrstu tveimur umferðum ensku úrvalsdeildarinnar en liðið mætir Brighton á laugardag..

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City2+46
2Arsenal2+46
3Hull City2+36
4Chelsea2+26
5Brentford2+34
6Newcastle2+24
7Everton2+24
8Leeds2+14
9Brighton2+33
10Man Utd2+13
11Sunderland203
12Ipswich Town2-23
13Liverpool202
14Bournemouth2-11
15Nott. Forest2-11
16Fulham2-20
17Coventry2-40
18Crystal Palace2-50
19Aston Villa2-50
20Tottenham2-50
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.