Fotbolti.net
03.09.26 - 15:00
Enski boltinn

„Þetta er náttúrulega bara engin umræða"

Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United.

Bruno Fernandes, fyrirliði Manchester United.

Canon

Mynd: EPA

Bruno Fernandes var leikmaður ársins í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og var magnaður í liði Manchester United. Hann hefur verið það frá því hann kom til félagsins frá Sporting Lissabon í janúar 2020.

Man Utd vann Ipswich 5-2 um síðustu helgi í ensku úrvalsdeildinni þar sem Fernandes skoraði þrennu og lagði upp eitt.
Eftir leikinn sagði Gary Neville, fyrrum leikmaður United, að kaupin á Fernandes væru þau bestu sem félagið hefði gert eftir að Sir Alex Ferguson hætti með liðið.

Rætt var um þetta í Enski boltinn hlaðvarpinu en þar voru menn sammála um að þetta væri nú engin umræða.

„Þetta er náttúrulega bara engin umræða," sagði Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson í hlaðvarpinu.

„Það er svolítið gefið," sagði Friðleifur Friðleifsson.

„Ég er að reyna að velta fyrir mér hvort einhver komist nálægt honum," sagði Haraldur Örn Haraldsson en það kom enginn upp í hugann og það skiljanlega.

Enski boltinn - Hull í draumalandi og glugganum lokað

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.