Fotbolti.net
03.09.26 - 19:40
Ívan Guðjón Baldursson

Watkins: Svipuð gæði hér og í úrvalsdeildinni

Watkins: Svipuð gæði hér og í úrvalsdeildinni
Canon

Mynd: EPA

Sádi-arabíska stórveldið Al-Hilal fékk enska landsliðsmanninn Ollie Watkins til liðs við sig í sumarglugganum.
Watkins byrjaði á bekknum í stórleik gegn Al-Ahli í fyrstu umferð og var skipt inn í hálfleik, þegar staðan var orðin 2-0 fyrir lærlinga Simone Inzaghi í Al-Hilal.

Watkins skoraði eina markið í síðari hálfleik svo lokatölur urðu 3-0.

Theo Hernández, Kalidou Koulibaly, Crysencio Summerville, Rúben Neves og Sergej Milinkovic-Savic voru meðal byrjunarliðsmanna Al-Hilal á meðan Ivan Toney, Galeno, Francisco Trincao, Eduard Spertsyan, Merih Demiral, Roger Ibanez og Edouard Mendy voru í byrjunarliði Al-Ahli. Watkins segir að gæðin hafi ekki verið minni heldur en í ensku úrvalsdeildinni.

„Þetta var mjög erfiður leikur og það voru mikil gæði á vellinum. Ef ég á að vera heiðarlegur þá voru þetta svipuð gæði og í ensku úrvalsdeildinni," sagði Watkins eftir sigurinn.

„Ég vissi um leið og ég fékk tilboð frá Al-Hilal að ég vildi koma hingað. Ég sá hversu vel liðið spilaði á HM félagsliða og þegar ég skoða stöðuna í deildinni sé ég Al-Hilal alltaf í titilbaráttu. Ég kom hingað til þess að vinna titla og ég tel þetta vera rétta liðið til þess að hjálpa mér að afreka það.

„Ég er með stórkostlega liðsfélaga og vonandi tekst mér að skora í hverjum einasta leik. Ég á eftir að fá mikið af færum með Rúben Neves og Sergej Milinkovic-Savic fyrir aftan mig. Þeir eru rosalega gáfaðir leikmenn. Ég þarf bara að fara í hlaup og þeir finna mig."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.