Fotbolti.net
03.10.23 - 22:47
Ívan Guðjón Baldursson

Tók saman neikvæð met Ten Hag á upphafi nýs tímabils

Tók saman neikvæð met Ten Hag á upphafi nýs tímabils
Canon

Mynd: EPA

Mike LUHG (Love United Hate Glazers) er vinsæll stuðningsmaður Manchester United á samfélagsmiðlinum X.
Hann er ekki mikill stuðningsmaður Erik ten Hag, knattspyrnustjóra Man Utd, og tók saman ýmis neikvæð met sem hafa verið 'bætt' á upphafi nýs tímabils undir stjórn Ten Hag.

Þetta gerði Mike eftir 2-3 tap Man Utd á Old Trafford gegn Galatasaray í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í kvöld.

Hér fyrir neðan má sjá helstu metin sem voru 'bætt', en neðst í fréttinni er hægt að skoða allan listann sem Mike bjó til.

- Galatasaray hafði ekki unnið leik á enskri grundu í 117 ár, þar til Erik ten Hag.

- Man Utd hafði aldrei tapað fyrstu tveimur leikjunum riðlakeppni Meistaradeildarinnar, þar til Erik ten Hag.

- Man Utd hafði ekki verið með jafn lítið af stigum eftir 7 umferðir í deildinni síðan 1989, þar til Erik ten Hag.

- Man Utd hafði ekki fengið fjögur mörk á sig í leik í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í 28 ár, þar til Erik ten Hag.

- Man Utd hafði ekki fengið þrjú mörk á sig í þremur leikjum í röð síðan 1978, þar til Erik ten Hag.

- Man Utd hafði ekki fengið meira en tvö mörk á sig í fjórum leikjum í röð síðan 1979, þar til Erik ten Hag.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.