Franska stórstjarnan Kylian Mbappe yfirgaf Paris Saint-Germain í sumar og fór til Real Madrid.
Luis Enrique þjálfaði hann hjá PSG á síðasta tímabili en samband þeirra var ekki alltaf upp á það besta. Enrique var ekki hræddur við að gagnrýna Mbappe í fjölmiðlum.
Luis Enrique þjálfaði hann hjá PSG á síðasta tímabili en samband þeirra var ekki alltaf upp á það besta. Enrique var ekki hræddur við að gagnrýna Mbappe í fjölmiðlum.
Hann var ekki heldur hræddur við að gagnrýna Mbappe í einrúmi en núna er í dreifingu myndband þar sem þeir eru á taktískum fundi á síðustu leiktíð.
Á fundinum sést Enrique hrauna yfir Mbappe fyrir að skila lítill varnarvinnu.
„Ég las að þú værir aðdáandi Michael Jordan. Hann varðist eins og óður maður," segir Enrique meðal annars í myndbandinu.
Enrique róaði sig aðeins og sagði við Mbappe að hann væri leikmaður í heimsklassa. Hann ætti að reyna að fara frá félaginu með hvelli en þarna var það ljóst að hann væri að yfirgefa PSG.
Myndbandið má sjá hér fyrir neðan .
"He leído que te gustaba Michael Jordan".
— Fútbol en Movistar Plus+ (@MovistarFutbol) October 3, 2024
"Michael Jordan se ponía a defender como un hijo de p***".#LuisEnrique ????? Mbappé
???? Lunes 7, '???????? ????????????????????????? ???????? **** ????????????????' Capítulo 2. pic.twitter.com/VSYqtTAIsl
Athugasemdir