Fotbolti.net
23.11.26 - 12:39
Elvar Geir Magnússon

Kemur í ljós á morgun hvort Marokkó eða Senegal sé Afríkumeistari 2025

CAS Íþróttadómstóllinn.

CAS Íþróttadómstóllinn.

Canon

Mynd: EPA

Síðdegis á morgun mun CAS, Alþjóðlegi íþróttadómstóllinn í Lausanne, skera úr um hvort Marokkó eða Senegal eigi að fá Afríkumeistaratitilinn fyrir 2025.

CAS er æðsta dómstig íþrótta í heiminum.
Senegal vann 1-0 sigur gegn Marokkó í úrslitaleiknum 18. janúar og eftir sigurinn fögnuðu um milljón manns sigrinum úti á götum höfuðborgarinnar Dakar

En Marokkó var síðan dæmdur 3-0 sigur en Senegalar kærðu niðurstöðuna til CAS. Í yfirlýsingu senegalska fótboltasambandsins var niðurstaðan sögð „ósanngjörn, fordæmalaus og óásættanleg“.

Hvað gerðist í úrslitaleik Afríkukeppninnar?
Brahim Diaz, leikmaður Marokkó, féll niður í teignum í blálokin í úrslitaleiknum. Dómarinn hélt leiknum áfram en að lokum dæmdi VAR vítaspyrnu.

Það var vægast sagt mikið ósætti hjá Senegal með atvikið og Pape Thiaw, þjálfari Senegal, skipaði leikmönnum liðsins að fara inn í klefa í mótmælaskyni.

Marokkó kærði úrslit leiksins og áfrýjunarnefnd afríska fótboltasambandsins komst að þeirri niðurstöðu að hegðun senegalska liðsins hafi brotið gegn reglugerðum. Með því að yfirgefa leikinn ætti að dæma liðinu tap og Marokkó var dæmdur 3-0 sigur.
Kemur í ljós á morgun hvort Marokkó eða Senegal sé Afríkumeistari 2025
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.