Fotbolti.net
03.11.26 - 21:14
Brynjar Ingi Erluson

Áfall fyrir Man Utd

Carlos Baleba í leiknum í kvöld

Carlos Baleba í leiknum í kvöld

Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Kamerúnski miðjumaðurinn Carlos Baleba er kominn aftur á meiðslalista Manchester United en hann virtist togna aftan í læri gegn Roma í kvöld.
„Þetta er bara vandræðalegt hjá United“
TENGT EFNI

„Þetta er bara vandræðalegt hjá United“

Baleba gekk til liðs við Manchester United frá Brighton í sumar, en hann glímdi við meiðsli þegar hann kom til félagsins.

Hann sneri aftur á völlinn í byrjun október, en nú virðist hann vera kominn aftur á meiðslalistann.

Miðjumaðurinn fékk boltann innan vítateigs og var kominn í ágæta skotstöðu þegar hann fann skyndilega fyrir sársauka aftan í læri og gat ekki klárað sóknina.

Baleba þurfti í kjölfarið að fara af velli og kom Youri Tielemans inn á í hans stað.

Það virðist hreinlega ekkert ganga upp hjá United þessa dagana og þessi meiðsli bæta aðeins gráu ofan á svart.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.