Fotbolti.net
03.11.26 - 20:59
Brynjar Ingi Erluson

„Þetta er bara vandræðalegt hjá United“

„Þetta er bara vandræðalegt hjá United“
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Manchester United er 2-0 undir gegn Roma í hálfleik í Meistaradeildinni og stefnir allt í að liðið fari tíunda leikinn í röð án sigurs.
Stuðningsmenn Man Utd brjálaðir - Köstuðu tennisboltum í átt að leikmönnum
TENGT EFNI

Stuðningsmenn Man Utd brjálaðir - Köstuðu tennisboltum í átt að leikmönnum

Matias Soule kom Roma yfir á 11. mínútu og Donyell Malen tvöfaldaði forystuna úr vítaspyrnu eftir að Ayden Heaven hafði handleikið boltann innan teigs.

Frammistaða United hefur verið afar slök og hefðu leikmenn Roma hæglega getað bætt við tveimur eða þremur mörkum.

Alan Shearer, sérfræðingur hjá Amazon Prime, segir frammistöðu United hreint út sagt vandræðalega.

„Það hefur nákvæmlega ekkert verið í þessari frammistöðu. Ég hef ekki séð eina tæklingu, fyrirgjöf eða skot á mark. Það er einfaldlega ekkert jákvætt hægt að taka út úr þessu.“

„Ég veit ekki einu sinni hvar Carrick á að byrja því þeir hafa verið slakir á öllum sviðum.“

„Varnarleikurinn hefur verið út um allt, þeir hafa ekkert skapað á miðjunni og það hafa engin hlaup komið inn fyrir vörnina í sóknarleiknum. Engar skottilraunir og engin tilraun til að koma boltanum framar á völlinn. Þetta hefur verið hreint út sagt vandræðaleg frammistaða hjá United,“
sagði Shearer.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.