03.11.26 - 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Breytingar í kortunum hjá Val

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hefur stjórn fótboltadeildar Vals lagt til við aðalstjórn félagsins að deildin verði rekin á eigin kennitölu. Fram til þessa hefur allt Knattspyrnufélagið Valur, allar íþróttagreinar og allar deildir, verið rekið á einni og sömu kennitölunni.
Það er ólíkt þeim félögum á Íslandi sem Valur keppir við, þar sem fótboltadeildin er yfirleitt sjálfstæð rekstrareining með eigin kennitölu.
Verði tillagan samþykkt mun fótboltadeildin í kjölfarið ráða framkvæmdastjóra sem hefur bæði þekkingu á rekstri og á fótbolta. Starfið kemur í stað starfs tæknilegs ráðgjafa, sem verið hefur hjá Val undanfarna mánuði. Framkvæmdastjórinn mun jafnframt koma að leikmannamálum í samstarfi við þjálfara og stjórn deildarinnar.

TENGT EFNI
Halli Björns mun líka starfa á skrifstofu Vals
Tillagan er nú til umfjöllunar hjá aðalstjórn Vals.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð