Fotbolti.net
03.11.26 - 19:13
Brynjar Ingi Erluson

Messi og Ronaldo orðlausir - „Þvílíkur harmleikur“

Cristiano Ronaldo og Lionel Messi

Cristiano Ronaldo og Lionel Messi

Canon

Mynd: EPA

Cristiano Ronaldo og Lionel Messi, tveir af bestu fótboltamönnum allra tíma, hafa sent fjölskyldu spænska framherjans Jesus De Miguel samúðarkveðjur.
Gæti fengið allt að tólf leikja bann
TENGT EFNI

Gæti fengið allt að tólf leikja bann

De Miguel lést á sjúkrahúsi í morgun, rúmum tólf tímum eftir að hafa fengið gríðarlegt högg frá Jesus Owono, markverði Andorra, í leik liðsins gegn Tenerife í gær.

Framherjinn fór í hjartastopp í kjölfar höggsins og tók töluverðan tíma að endurlífga hann. Ástand hans var sagt stöðugt í nótt, en heilsu hans hrakaði snemma í morgun og lést hann skömmu síðar.

Fráfall hans hefur slegið fótboltaheiminn, enda var atvikið skelfilegt og afleiðingarnar hörmulegar.

Fjölmargir hafa sent fjölskyldu De Miguel samúðarkveðjur og nú hafa stórstjörnurnar Ronaldo og Messi bæst í þann hóp.

„Þvílíkur harmleikur. Ég er orðlaus og sendi fjölskyldunni allan minn styrk. Megi hann hvíla í friði,“ skrifaði Ronaldo á Instagram.

Messi tók undir orð Ronaldo og sendi einnig frá sér hjartnæma kveðju.

„Maður er orðlaus. Ég sendi fjölskyldu hans og vinum mínar dýpstu samúðarkveðjur og allan minn styrk. Hvíldu í friði og fljúgðu hátt, Jesus de Miguel Alameda,“ skrifaði Messi.


Jesus De Miguel er látinn langt fyrir aldur fram

Jesus De Miguel er látinn langt fyrir aldur fram

Canon

Mynd: Tenerife

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.