Fotbolti.net
03.12.24 - 18:27
Brynjar Ingi Erluson

Byrjunarlið Ipswich og Crystal Palace: Fjórar breytingar hjá heimamönnum

Jefferson Lerma fer á bekkinn

Jefferson Lerma fer á bekkinn

Canon

Mynd: EPA

Ipswich Town og Crystal Palace mætast í 14. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á Portman Road klukkan 19:30 í kvöld.
Heimamenn í Ipswich eru án sigurs í síðustu tveimur leikjum á meðan Palace hefur ekki unnið í síðustu fjórum.

Kieran McKenna, stjóri Ipswich, gerir fjórar breytingar frá 1-0 tapi liðsins gegn Nottingham Forest. Harrison Clarke, Jack Clarke, Wes Burns og Jacob Greaves koma inn. Conor Chaplin og Sammie Szmodics koma á bekkinn, en Axel Tuanzebe og Cameron Burgess eru ekki með.

Oliver Glasner gerir aðeins eina breytingu á liði Palace. Cheick Doucoure kemur inn fyrir Jefferson Lerma, sem tekur sér sæti á bekknum.

Ipswich Town: Muric, H. Clarke, O'Shea, Greaves, Davis, Morsy, Cajuste, Burns, Hutchinson, J. Clarke, Delap.

Crystal Palace: Henderson, Munoz, Lacroix, Chalobah, Guehi, Mitchell, Hughes, Doucoure, Sarr, Eze, Mateta.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Brighton1+43
2Arsenal1+33
3Brentford1+33
4Everton1+23
5Hull City1+23
6Chelsea1+13
7Man City1+13
8Ipswich Town1+13
9Leeds1+13
10Liverpool101
11Newcastle101
12Fulham1-10
13Sunderland1-10
14Bournemouth1-10
15Nott. Forest1-10
16Man Utd1-20
17Crystal Palace1-20
18West Ham38-1939
18Tottenham1-30
19Coventry1-30
19Burnley38-3722
20Wolves38-4120
20Aston Villa1-40
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.