Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 04. febrúar 2023 19:54
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu þrefalda vörslu Vicario og ótrúlegt klúður Abraham
Abraham er búinn að skora 7 mörk og gefa 5 stoðsendingar í 28 leikjum á tímabilinu.
Abraham er búinn að skora 7 mörk og gefa 5 stoðsendingar í 28 leikjum á tímabilinu.
Mynd: EPA

Roma tók á móti Empoli í ítalska boltanum í dag og hafði betur, 2-0, þökk sé mörkum sem voru skoruð á fyrstu sex mínútum leiksins.


Paulo Dybala átti báðar stoðsendingarnar en þær komu úr flottum hornspyrnum sem Empoli réði engan veginn við og voru næstum fleiri mörk sprottin úr hornspyrnum.

Heimamenn í Róm hefðu getað bætt nokkrum mörkum við og þá sérstaklega Tammy Abraham sem komst grátlega nálægt því eftir að hafa skorað á sjöttu mínútu.

Guglielmo Vicario átti frábæran leik á milli stanga Empoli og átti þá sérstaklega þrefalda markvörslu sem hefur vakið mikla athygli. Þar sést í lokin þegar Abraham klúðrar ótrúlegu skallafæri.

Gestirnir frá Empólí fengu einnig sín færi en tókst ekki að skora.

Sjáðu ótrúlegt klúður Tammy Abraham


Athugasemdir
banner
banner