Fotbolti.net
29.09.26 - 12:10
Kári Snorrason

Búist við 50 Íslendingum í stúkunni í kvöld

Kári Snorrason skrifar frá Lúxemborg:

Nokkrir Íslendingar gerðu leið sína til Lúxemborgar þegar liðin mættust fyrir þremur árum.

Nokkrir Íslendingar gerðu leið sína til Lúxemborgar þegar liðin mættust fyrir þremur árum.

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Eimskip
Búist er við um 50 Íslendingum í stúkunni á Stade de Luxembourg í kvöld þegar Ísland sækir Lúxemborg heim í öðrum leik sínum í C-deild Þjóðadeildarinnar.

Völlurinn lagður með hybrid-grasi og tekur tæplega 9500 manns í sæti. Alls er búist er við 8500 áhorfendum í kvöld, samkvæmt upplýsingum sem KSÍ veitti fjölmiðlum í morgun.
Spaðalegi völlur Lúxemborgar sem Ísland getur horft til - Arnar orðinn þreyttur á stöðunni
TENGT EFNI

Spaðalegi völlur Lúxemborgar sem Ísland getur horft til - Arnar orðinn þreyttur á stöðunni

Lestu um leikinn: Lúxemborg 0 - 0 Ísland
Þegar liðin mættust síðast í Lúxemborg fyrir þremur árum, þá í undankeppni EM 2024, voru rúmlega 7400 áhorfendur, þar á meðal nokkrir Íslendingar.

Ísland gerði 1-1 jafntefli gegn Eistlandi síðastliðinn laugardag. Eistland (127) er neðsta lið riðilsins á heimslista FIFA, en Ísland er í 74. sæti á sama lista.

Lúxemborg (98) vann sterkan útisigur á Búlgaríu (85) í fyrstu umferð og er á toppi riðilsins nú þegar ein umferð er búin.
Frá æfingu landsliðsins í gær.

Frá æfingu landsliðsins í gær.

Canon

Mynd: Kári Snorrason

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.